Ný ríkisstjórn formlega kynnt klukkan 16:00 í dag 1. febrúar 2009 09:28
Ný ríkisstjórn tekur að öllum líkindum við völdum á Bessastöðum seinnipartinn í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar sem fer með stjórnarmyndunarumboðið, gengur á fund Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands klukkan tólf á hádegi. Þar mun hún gera honum grein fyrir að flokkur hennar og Vinstri grænir hafi náð saman um ríkisstjórn sem Framsóknarflokkurinn muni verja falli. Þingmenn minnihlutastjórnarinnar verða 27 en með stuðningi Framsóknarflokksins hefur ríkisstjórnin 35 þingmenn á bakvið sig, sem er fjögurra manna meirihluti á Alþingi. Jóhanna Sigurðardóttir gengur síðan á fund forseta klukkan eitt, þar sem hann mun væntanlega gefa henni umboð til stjórnarmyndunar að tillögu Ingibjargar Sólrúnar. Að loknum fundi Jóhönnu og forseta halda stjórnarflokkarnir væntanlegu þingflokksfundi, þar sem kynntar verða tillögur formanna flokkanna um ráðherraefni þeirra. Ekki er reiknað með að þeir fundir verði langir, nema deilur rísi um ráðherraefni formannanna. Samfylkingin mun svo halda flokksráðsfund þar sem stjórnarsáttmáli, aðgerðaráætlun og ráðherralisti nýrrar ríkisstjórnar verður kynntur. Framsóknarmenn halda miðstjórnarfund klukkan hálf tvö, þar sem formaður flokksins kynnir aðkomu flokksins að myndun nýrrar ríkisstjórnar. Að þessum fundi loknum munu forystumenn ríkisstjórnarinnar kynna málin fyrir fjölmiðlum, sennilega um klukkan fjögur í dag í gyllta sal Hótel Borgar. Ríkisráðsfundir á Bessastöðum hafa ekki verið tímasettir en reikna má með að fráfarandi ríkisstjórn komi til fundar með forseta klukkan fimm og nýjir ráðherrar klukkan sex, þar sem þeir verða formlega skipaðir í embætti.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Sjá meira