Innlent

Stjórnarflokkarnir gangi bundnir til kosninga

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.
Vilji er fyrir því innan beggja stjórnarflokkanna að þeir gangi bundnir til kosninga og stefni á að halda samstarfinu áfram eftir kosningar, án fulltingis Framsóknarflokksins.

Það heyrist á Samfylkingarráðherrum að þeim finnist skemmtilegra á ríkisstjórnarfundum nú, en þegar sjálfstæðsiráðherrar sátu með þeim til borðs. Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og vinstri grænna er hins vegar ekki með þingmeirihluta heldur situr hún í skjóli Framsóknarflokksins.

Vinstri grænir sem fréttastofa hefur rætti við segja mikinn áhuga í sínum röðum á því að samstarfið við Samfylkinguna haldi áfram eftir kosningar, en án Framsóknarflokksins. Þetta hafi ekki verið rætt formlega við samfylkingarfólk, en þó óformlega og mikil umræða eigi sér stað innan flokks.

Svipaða sögu er að segja af Samfylkingunni. Þar er áhuginn fyrir hendi hjá sumum þingmönnum og málið er rætt innan flokks. Þá eru sumir frambjóðendur eindregið á því máli að flokkarnir stefni á áframhaldandi samstarf, til að mynda Skúli Helgason fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar sem hefur lengi starfaði náið með æðstu forystusveit flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×