Flateyjargáta í sjónvarpið 3. október 2009 04:30 Skrifað undir samstarfið. Björn Brynjúlfur og Viktor Arnar handsala samninginn um að gera sjónvarpsseríu eftir bók rithöfundarins, Flateyjargátu.Mynd/JPV „
Hún er allavega farin í þróun, við sjáum svo til hvernig gengur að fjármagna hana,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson kvikmyndagerðarmaður. Hann samdi nýlega við glæpasagnarithöfundinn Viktor Arnar Ingólfsson um að gera sjónvarpsseríu byggða á bók Viktors, Flateyjargátu. Þeir tveir hafa áður ruglað saman reytum því Björn Brynjúlfur leikstýrði einnig þáttaröðinni Mannaveiðum sem byggð var á bók Viktors og sýnd á RÚV. Björn viðurkennir að þetta samkomulag komi kannski ekki á besta tíma en eins og lesa má framar í Fréttablaðinu verða framlög til sjónvarps- og kvikmyndagerðar skorin niður um rúman þriðjung samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Björn segist hins vegar vera vongóður og ætlar ekki að leggja árar í bát. „Þetta er flott saga sem hefur verið gefin út víða í Evrópu og ég vænti mjög góðs af þessu samstarfi.“ Björn segir það hafa heillað sig að Flateyjargátan sé óvenjuleg bók, hún gerist að mestu leyti úti í Flatey og tengist íslensku handritunum. „Það er svona smá Da Vinci-tenging og svo eru líka óvenjulegar og skemmtilegar persónur og óvenjulegt sögusvið. Það er alltaf gaman að gera eitthvað sem er svona mikið öðruvísi og sýnir ekki bara lögreglumenn hlaupandi um götur Reykjavíkur.“- fgg
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira