Rauði krossinn vill ekki senda flóttmenn til Grikklands 11. júní 2009 09:54 Fit Hostel á góðum degi.
Rauði kross Íslands harmar þá niðurstöðu sem fram kemur í skýrslu dómsmálaráðuneytisins að hælisleitendur verði aftur sendir til Grikklands á grundvelli Dyflinnar reglugerðarinnar. Alls stendur til að senda sex hælisleitendur til Grikklands á grundvelli þesarar umdeildu reglugerðar en til stóð að sena Paul Ramses á sínum tíma til Grikklands á sömu forsendum. Því var snúið við að lokum. Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, ákvað að fresta að senda sexmenningana til Grikklands á sínum tíma þangað til úttkekt á málinu færi fram innan dómsmálaráðuneytisins. Nú hefur verið sagt frá því að í óbirtri skýrslu komi fram að senda eigi flóttamennina sex til Grikklands. Þessu mótmælir Rauði Krossinn harkalega og segir í tilkynningu: Rauði krossinn hefur ítrekað beint þeim tilmælum til dómsmálaráðherra að hælisleitendur verði ekki sendir til Grikklands að svo stöddu og byggt þau á skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2008. Dómsmálaráðuneytið hefur nú til meðferðar mál sex einstaklinga sem sótt hafa um hæli á Íslandi eftir að hafa dvalist fyrst í Grikklandi. Lengst hafa þeir dvalist á Íslandi í rúmt ár en skemmst í rúma sjö mánuði. Á þeim tíma hafa þeir myndað góð og sterk tengsl við landið og við aðra borgara hér. Allir hafa þeir sótt eftir vernd hérlendis þar sem þeir telja sér ekki óhætt verði þeir sendir aftur til Grikklands á grundvelli Dyflinnar reglugerðarinnar. Rauði krossinn hefur, ásamt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, haft áhyggjur af ójafnri dreifingu hælisbeiðna innan Dyflinnar samstarfsins þar sem unnt er að endursenda hælisumsækjanda til þess ríkis sem hann kom fyrst til innan Evrópu. Landsfélög Rauða krossins í Evrópu hafa í sameiningu bent á að núverandi beiting reglugerðarinnar hefur haft þau áhrif að evrópska hæliskerfið sé í raun einskonar happdrætti sem hefur því miður í för með sér að margir berskjaldaðir hælisleitendur fái ekki þá vernd og aðstoð sem þeir þurfa. Í áliti sem Rauði krossinn sendi frá sér 12. nóvember á síðasta ári segir að endurskoðun á grundvallargildum Dyflinnarreglugerðarinnar sé nauðsynleg. Í skýrslu Flóttamannastofnunar frá 15. apríl 2008 er lýst áhyggjum af stöðu hælismála í Grikklandi og þeim aðstæðum sem hælisleitendur þar í landi búa við. Flóttamannastofnun hefur hvatt aðildarríki til að endursenda hælisleitendur ekki til Grikklands. Fulltrúar stofnunarinnar segja þetta álit óbreytt. Rauði kross Íslands er sama sinnis og hefur ítrekað þá afstöðu við íslensk stjórnvöld. Rauði krossinn vill að umsókn hvers og eins hælisleitenda sé skoðuð sérstaklega og leggur áherslu á að hvert og eitt ríki sem samþykkt hefur Dyflinnar reglugerðina sé ekki skyldugt til að endursenda fólk á þeim forsendum þó það sé heimilt. Í samræmi við það telur Rauði krossinn nauðsynlegt að dómsmálaráðuneytið skoði persónulegar aðstæður hælisleitendanna sem þegar dvelja hér á landi og þau tengsl sem þeir hafa myndað hérlendis. Því eru það eindregin tilmæli Rauða kross Íslands til íslenskra stjórnvalda að senda ekki hælisleitendur til Grikklands að svo stöddu.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira