Lífið

Ekki í herferð gegn Radiohead

Editors Vill stöðva ólöglegt niðurhal.
Editors Vill stöðva ólöglegt niðurhal.

Tom Smith, forsprakki bresku hljómsveitar­innar Editors, segist ekki vera í herferð gegn snillingunum í Radiohead, þrátt fyrir að hafa sagt meðlimi hljómsveitarinnar vera sjálfselska í viðtali á dögunum.

Þegar Radiohead gaf út plötuna In Rainbows árið 2007 gaf hljómsveitin aðdáendum sínum kost á að borga hvað sem er fyrir plötuna – eða borga ekki neitt. Smith sagði í viðtali við breska NME-útvarpið að útspilið hefði unnið gegn baráttunni gegn ólöglegu niðurhali. „Ég er ekki að ráðast á Radiohead,“ sagði Smith.

„Mér finnst að hljómsveitin eigi að hjálpa til í baráttunni gegn niður­hali, en hún gaf plötuna sína og gjaldfelldi þannig tónlistina.“ - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.