Innlent

FÍB: Stjórnvöld í skattavíking gegn bifreiðaeign

Runólfur Ágústsson er framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Runólfur Ágústsson er framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda varar ríkisstjórnina við margþættum óæskilegum áhrifum af frumvarpi sem nú er til umfjöllunar á Alþingi sem felur meðal annars í sér 10% hækkun bifreiðagjalds. Félagið segir að sú aðferð stjórnvalda að leggjast í skattavíking gegn bifreiðaeign og bifreiðanotkun landsmanna þegar rétta þurfi hag ríkissjóðs sé ekki ný saga.

Frumvarpið fékk flýtimeðferð og verður væntanlega að lögum í kvöld. Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa gagnrýnt frumvarpið í umræðum í kvöld og hafa nokkrir þeirra hvatt Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra til að draga frumvarpið til baka.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda er eindregið mótfallið því að lagðar verði meiri álögur á almenning með því að þyngja „enn einu sinni" álögur á bíla og bílanotkun.

Bíllinn er það heimilistæki fjölskyldna í dreifbýlu landi sem þær geta einna síst verið án, að fram kemur í tilkynningu frá FÍB. Þar segir bíllinn geri fólki auðveldara að sækja vinnu og afla tekna.

„Í því efnahags- og atvinnuástandi sem nú ríkir hlýtur það að teljast afar ámælisvert að vega með þessum hætti, enn einu sinni, að atvinnumöguleikum heimilanna."






Tengdar fréttir

Hækkun gjalda hefur óhjákvæmilega neikvæð áhrif

Gjöld á bíla, eldsneyti, áfengi og tóbak hækka um tíu til fimmtán prósent, samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi í kvöld. Fjármálaráðherra segir að ekki verði hjá því komist að hækkun gjalda hafi neikvæð áhrif á verðlagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×