Þurfa ekki að skila inn vottorðum 16. október 2009 12:29 Bólusetning heilbrigðisstarfsmanna hófst í gær. Mynd/Vilhelm
Menntamálaráðuneytið sendi í dag stjórnendum framhaldsskóla bréf þar sem lagt er til að nemendur þurfi ekki að skila læknisvottorðum í veikindatilvikum. Sömu tilmælum hefur verið beint til atvinnurekenda. Þetta er gert að beiðni Haralds Briem, sóttvarnalæknis, sem líkt og greint var frá í gær hefur beint þeim tilmælum til atvinnurekenda og skólastjórnenda að hætt yrði um sinn að krefja starfsfólk á vinnumarkaði og skólanemendur um vottorð vegna veikinda. Fram kemur í tilkynningu að atvinnurekendur og skólastjórnendur eigi að taka fólk trúanlegt þegar það tilkynni veikindaforföll og létta í leiðinni álagi af heilbrigðiskerfinu á meðan inflúensufaraldurinn gengur yfir. Menntamálaráðuneytið sendi í dag stjórnendum framhaldsskóla bréf í þar sem segir: „Ráðuneytið leggur áherslu á að nemendur í framhaldsskólum þurfi ekki að skila læknisvottorðum í veikindatilvikum. Það verði tilkynnt nemendum í hverjum skóla. Um tímabundnar aðgerðir er að ræða." Þá sendi Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri og sóttvarnalæknir höfuðborgarsvæðisins, Samtökum atvinnulífsins erindi þar sem segir: „Um þessar mundir er mikið álag á heilsugæslustöðvar höfuðborgarsvæðisins (Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes) vegna inflúensufaraldurs. Læknar heilsugæslunnar eiga fullt í fangi með að sinna þeim sem þurfa að leita sér lækninga og þurfa því að forgangsraða verkefnum sínum. Af þeim sökum tilkynnist að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins getur ekki sinnt þessum þætti tímabundið, meðan þetta ástand varir, og bendir atvinnurekendum á að leita annarra leiða við að staðfesta veikindi."
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira