Bréfið sem Jóhanna sendi Davíð 3. febrúar 2009 20:26 Jóhanna Sigurðardóttir sendi Davíð bréf. „
Ljóst er að traust manna á fjármálakerfi Íslendinga hefur beðið gífurlegan hnekki. Á það jafn við um fjármálafyrirtækin sem starfað hafa á markaðnum og opinbera aðila, ráðuneyti og stofnanir sem hlutverk hafa haft við stjórnun og eftirlit með fjármálakerfinu og er Seðlabanki Íslands þar ekki undanskilinn. Umtalsverðir þjóðhagslegir hagsmunir eru fólgnir i´því að það takist að endurvekja traust á fjármálakerfinu og ber ríkisstjórninni skylda til að skoða allar mögulegar leiðir í því sambandi." Þannig hljómar upphaf á bréfi sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi Davíð Oddssyni, formanni bankastjórnar Seðlabankans. Eins og greint hefur verið frá kynnti Jóhanna nýtt frumvarp um Seðlabanka Íslands í ríkisstjórn í morgun. Frumvarpið fer svo fyrir þingflokkana og verður að því loknu lagt fram á Alþingi. Fer Jóhanna því fram á það við bankastjórana þrjá að hægt verði að semja við þá um starfslok. „Með hliðsjón af þvi og þeim markmiðum sem liggja að baki frumvarpinu og lýst hefur verið vill ríkisstjórnin kanna hvort vilji sé til þess af yðar hálfu að biðjast lausnar frá embætti nú þegar og leggjast þannig á sveif með stjórnvöldum í viðleitni þeirra til að endurvekja trúverðugleika og traust á Seðlabanka Íslands," segir Jóhanna í bréfinu. Ekki er vitað hvort bankastjórarnir muni víkja úr bankanum eins og Jóhanna biður um. Lesa má bréfið með því að hægrismella með músarbendlinum á myndina. Þá opnast gluggi þar sem hægt er að velja "open link in new window". Smellið á þann valmöguleika og þá opnast bréfið.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira