Heimildamyndir í Nýló 23. júní 2009 02:00 kvikmyndir Kyrrmynd úr sögu um barn.
Nú hefst önnur sería heimildarmynda í Nýlistasafninu. Sýndar verða fjórar myndir frá ýmsum löndum sem allar hafa það sameiginlegt að fjalla um ímynd og persónusköpun. Við fylgjumst með því hvað gerist er barn sér spegilmynd sína í fyrsta sinn, fangelsisheimsókn ungrar dóttur til móður sinnar og sögu manns sem snýr aftur á heimaslóðir verandi síðasta manneskjan úr þorpinu. Myndirnar velta upp spurningum um það hversu nálægt viðfangsefni sínu kvikmyndagerðarmaðurinn geti gengið og hversu nálægt raunveruleikanum og reynsluheimi persóna hann geti komist. Í kvöld kl. 20 verða sýndar tvær myndir. Fyrsta myndin sem sýnd verður heitir Svyato, sem þýðir hamingjusamur, tær, kátur. Svyato er líka gælunafn yngsta sonar rússneska heimildarmyndagerðarmannsins Viktors Kossakovsky. Hér fylgjumst við með því hvað gerist þegar Svyato horfir í fyrsta skipti í spegill 2ja ára gamall og skilur smám saman muninn á sér og spegilmynd sinni. Myndin hefur unnið margföld verðlaun á virtustu heimildarmyndahátíðum heims, og Kossakovsky er einn af virtustu og mikilvægustu heimildarkvikmyndagerðarmönnum í heiminum í dag. Myndin er frá 2005 og er 33 mínútur. Jafnframt verður sýnd myndin Alone eftir Audrius Stonys þar sem ung stúlka heimsækir móður sína í fangelsi en myndin sýnir ómældan einmanaleika manneskjunnar. Stonys er þekktur fyrir ljóðrænar heimildarmyndir, hann er eitt af helstu nöfnunum úr post-sovét skólanum og vinnur með tökumanni Tarkovskys. Hann hefur einnig unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Myndin er 16 mínútur og er frá 2001. Umsjón með röðinni hefur myndlistar- og heimildarmyndagerðarkonan Yrsa Roca Fannberg. Nýlistasafnið er á Laugavegi 26 (gengið inn Grettisgötumegin) og er frítt inn. Frekari upplýsingar um myndirnar sem verða sýndar í júní er að finna á vefsíðu safnsins, www.nylo.is- pbb
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira