Innlent

Refaveiðar ekki styrktar en áfram herjað á minkinn

Styrkir ríkisins til refaveiða verða felldir niður á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Hins vegar verða minkaveiðar áfram styrktar, á þeim grundvelli á minkurinn sé aðskotadýr í íslenskri náttúru.

Sveitarfélög hafa til þessa greitt veiðimönnum fyrir veiða bæði ref og mink en síðan fengið styrki á móti frá ríkinu. Þannig endurgreiðir ríkið sveitarfélögum allt að 3.500 krónur fyrir hvert refaskott á þessu ári.

Umhverfisstofnun hefur nú sent sveitarfélögum landsins bréf þess efnis að þau geti ekki vænst þess að fá endurgreiðslur vegna refaveiða á næsta ári, enda sé búið að fella niður fjárveitinguna í fjárlagafrumvarpinu, sem var samtals um 17 milljónir króna í ár. Hins vegar er áfram gert ráð fyrir því að styrkja minkaveiðar með samsvarandi framlagi.

Í greinargerð fjárlagafrumvarpsins kemur fram að niðurfelling styrkja til refaveiða séu liður í markmiði umhverfisráðuneytisins að mæta markmiði ríkisstjórnarinnar um lækkun ríkisútgjalda.

Þegar spurt er hversvegna greinarmunur er gerður á refa- og minkaveiðum og hversvegna ríkið vill hlífa refnum en áfram herja á minkinn svarar Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytsins, því til að minkurinn sé innflutt tegund, sem ekki teljist hluti af íslenskri náttúru, öfugt við refinn. Það sé beinlínis vilji til þess að útrýma minknum og í gangi tilraunaverkefni í því skyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×