Jóhanna Guðrún: Mika glæsilegur en hlédrægur 18. ágúst 2009 07:30 Jóhanna Guðrún í Malmö ásamt hinum heimsfræga tónlistarmanni Mika.
Í kringum tólf þúsund manns hlýddu á tónleika Jóhönnu Guðrúnar, hins heimfræga Mika og þekktra sænskra tónlistarmanna í Malmö í Svíþjóð síðastliðinn laugardag. „Þetta gekk rosalega vel. Þetta fór fram eins og flestir tónleikar sem ég hef verið að syngja á undanfarið," segir Jóhanna, sem söng Eurovision-lagið Is it True? og Walking on Water af plötu sinni Butterflies and Elvis. Tónleikarnir voru haldnir undir beru lofti og skipulagðir af stærstu útvarpsstöð Svíþjóðar, RIXFM. Þrátt fyrir að vera aðdáandi Mika, sem sló í gegn með laginu Grace Kelly, gafst Jóhönnu ekki tækifæri til að blanda geði við hann að neinu ráði. „Um leið og hann mætti voru allir ljósmyndararnir reknir út og hann var ekkert að spjalla eða svoleiðis. En það var fyndið að sjá hann labba þarna um. Hann var mjög almennilegur og var líka glæsilegur á sviðinu," segir Jóhanna Guðrún. „Ég hafði það samt í mér að biðja um mynd með honum og fékk það," segir hún og viðurkennir að Mika sé frægasti tónlistarmaðurinn sem hún hafi sungið með á tónleikum. Eins og kom fram í Fréttablaðinu fyrir skömmu kemur platan Butterflies and Elvis út víðs vegar um Evrópu á næstu mánuðum á vegum útgáfufyrirtækisins Warner. Jóhanna mun hafa í nógu að snúast við að fylgja henni eftir og hefst sú törn í október og lýkur ekki fyrr en eftir jól. Hún hlakkar mikið til tónleikaferðarinnar, sérstaklega að fara til Þýskalands. „Það er mjög stór markaður þar og það væri geggjað að komast áleiðis þar," segir hún. Jóhanna er þegar orðin mjög vinsæl í Svíþjóð og situr platan hennar í áttunda sæti á breiðskífulistanum þar í landi. - fb
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira