Obama kom ekki til Frikka 3. október 2009 07:00 Vakti mikla athygli. Boðskort Friðriks til Baracks Obama vakti töluverða athygli en veitingahúsamaðurinn bindur vonir við að forsetinn komi í desember. „
Hann mætti ekki en ég bind vonir við að hann komi í desember. Hann var líka svo stuttan tíma hérna," segir Friðrik Weisshappel, eigandi Laundromat í Kaupmannahöfn. Hann tók sig til, keypti heilsíðuauglýsingu í danska stórblaðinu Politiken og bauð Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, í hamborgara. Til þess að boðskortið færi nú örugglega ekki framhjá Obama voru auglýsingaspjöld hengd upp um alla borg en allt kom fyrir ekki, Obama hafði ekki tíma til að koma með konu sinni og fá sér hamborgara. Obama kom til Danmerkur í gær til að leggja sitt á vogarskálarnar í baráttunni um Ólympíuleikana 2016 en heimaborg hans, Chicago, var ein þeirra sem kom til greina.Obama mátti sín lítils því Rio de Janeiro var valin. Friðrik segir Kaupmannahöfn hafa farið á annan endann í bókstaflegum skilningi, götum hafi verið lokað, flugvöllum líka og bein útsending var frá öllum fimm tímunum sem Obama dvaldist í Kaupmannahöfn á stærstu sjónvarpsstöðvum landsins. Friðrik segist hafa fengið gríðarlega góð viðbrögð við þessu uppátæki sínu en fjallað hefur verið um boðskortið á nokkrum erlendum vefsíðum sem og í öðrum dönskum fjölmiðlum. Athafnamaðurinn hyggst þó ekki ætla að bjóða upp á Barack-borgara í kjölfarið. „Nei, mér finnst það alltof auglýsingalegt, það er líka búið að gera það einhvers staðar." - fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Sjá meira