Innflytjendur með hærra lánshæfismat 3. október 2009 06:15 Erlendir ríkisborgarar standa betur í skilum af lánum sínum en íslenskir. Þá eru þeir með hærra lánshæfismat.fréttablaðið/vilhelm
Ríflega 77 prósent fólks með erlent ríkisfang á Íslandi teljast til tveggja áhættuminnstu lánshæfisflokkanna, A eða B. Hjá íslenskum ríkisborgurum er sambærilegt hlutfall 55 prósent. Þá eru erlendir ríkisborgarar í þessum flokki yngri að meðaltali en íslenskir, 36 ára á móti 55. Þá eru erlendir ríkisborgarar síður á vanskilaskrá. Það er fyrirtækið Creditinfo sem tekur þessar tölur saman. Rakel Sveinsdóttir forstjóri segir þetta skýrast af tvennu. Annars vegar séu erlendir ríkisborgarar minna skuldsettir en annar almenningur. Þá beri þessi hópur annað viðhorf til lántöku almennt, hafi annan bakgrunn þegar að lánum kemur. Lántaka þeirra byggi meira á eignastöðu lántakandans en hér hefur þekkst og meiri varkárni ríki í þessum efnum. Erlendir ríkisborgarar teljast því að mestu mjög skilvísir greiðendur. Rakel segir fólk erlendis víðast hvar mun betur upplýst um sína eigin greiðslugetu og stöðu gagnvart lánveitandanum. Þar sé fólk upplýst um eigið lánshæfismat og þannig umhverfi verði að koma á hér á landi. „Hér á landi var horft til greiðslugetunnar þá stundina sem lánið var tekið. Þannig sáum við 18 ára ungmenni með bílalán og 500 þúsund króna yfirdrátt. Það sér maður ekki erlendis, því þar verðurðu að hafa byggt upp viðskiptasögu við bankann áður en þú færð lán og sú saga hefur áhrif á lánakjörin. Þú getur verið með litla veltu en staðið í skilum og fengið betri lánakjör.“ Rakel segir ekki ólíklegt að erlendir ríkisborgarar hafi þau viðhorf til lána sem þekkist erlendis og það skýri betri stöðu þeirra hér á landi. Það sé í raun mun heilbrigðara viðhorf til lántöku. Á Íslandi eru 20.312 með erlent ríkisfang, þar af 3.090 börn undir 18 ára aldri. Pólverjar eru langflestir hér, tæplega 4.000, þá Litháar, um 1.400, og loks Þjóðverjar, en þeir eru ríflega 1.000 hér. Stærstur hluti erlendra ríkisborgara býr á höfuðborgarsvæðinu, ríflega 15.000. Sem hlutfall af íbúum hvers landsvæðis eru hins vegar flestir erlendir ríkisborgarar á Reykjanesi, 10,1 prósent af íbúafjöldanum. Á Vestfjörðum eru erlendir ríkisborgarar 9,7 prósent íbúafjöldans. Hlutfallslega fæstir eru þeir á Norðurlandi vestra, 3,6 prósent. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Sjá meira