Innlent

Grímseyjarhrottinn dæmdur

Alexander Jóhannesson handsamaður af sérsveitinni.
Alexander Jóhannesson handsamaður af sérsveitinni.

Grímseyjarhrottinn Alexander Jóhannesson var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir meðal annars að hafa hótað lögreglumönnum lífláti og svo þegar hann gekk berserksgang í Grímsey síðasta sumar. Þá þurfti að kalla til sérsveit Ríkislögreglustjórans.

Þá var hann einnig fundinn sekur um að hafa kasta sleggju á eftir manni en áður hafði hann haft í hótunum við hann vopnaður hnífi.

Alexander, sem er rúmlega tvítugur, var handtekinn í Grímsey og þaðan var hann færður til Akureyrar. Þar gekkst hann undir skoðun geðlæknis en var í kjölfarið færður á Litla-Hraun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×