Segir málatilbúnaðinn „árás“ 22. maí 2009 06:00 Gunnar fundar með Sjálfstæðisfélaginu á morgun. „
Þetta er náttúrlega eins og flest sem þaðan kemur; uppdikterað og margfaldað með pí,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, um frétt Ríkisútvarpsins í gær um að hann hygðist á fundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs á morgun ræða greiðslur bæjarins til fyrirtækis dóttur hans. Eins og fram hefur komið hefur bæjarráð Kópavogs falið endurskoðendum að kanna nánar viðskipti bæjarins við fyrirtækið Frjálsa miðlun sem hefur fengið greiddar ríflega 51 milljón króna frá árinu 2000. Frjáls miðlun er í eigu dóttur Gunnars og eiginmanns hennar. Gunnar segir löngu ákveðið að á fundi sjálfstæðismanna á morgun fari hann yfir stöðu mála í Kópavogi og undirbúning fyrir kosningar á næsta ári. Þótt hann muni ekki ræða viðskipti Kópavogsbæjar og Frjálsrar miðlunar á fundinum fari hann sjálfsagt yfir þá „árás“ sem málatilbúnaðurinn sé. „Ég fer yfir hvernig taktíkin er frá Samfylkingu og sumum fjölmiðlum í þessu máli sem er mjög sérkennileg,“ segir Gunnar sem aðspurður kveður félaga sína í Sjálfstæðisflokknum ekki vera að heimta af honum skýringar. „Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem þetta kemur upp heldur gerist það á þriggja til fjögurra ára fresti – sérstaklega þegar fer að nálgast kosningar,“ segir Gunnar sem kveðst sem fyrr ætla að bíða úttektar endurskoðenda áður en hann tjáir sig um málefni Frjálsrar miðlunar: „Þá sést þetta svart á hvítu.“ - gar
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira