Innlent

Vegir um Óshlíð og Súðavíkurhlíð enn lokaðir

Lokað vegna snjóflóðahættu.
Lokað vegna snjóflóðahættu.

Vegirnir um Óshlíð og Súðavíkurhlíð hafa verið lokaðir síðan í gærkvöldi vegna snjóflóða og snjóflóðahættu. Staðan verður metin á ný þegar birtir.

Fimm hús voru rýmd í Bolungarvík í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu og undir morgun fór að snjóa talsvert við Ísafjarðardjúpið. Vind er einnig tekið að herða í Bolungarvík og var hann orðinn 16 metrar á sekúndu um klukkan sex. Spáð er að hann geti farið yfir 20 metra á sekúndu á norðanverðum Vestfjörðum þegar líður á morguninn.

Hugsanlegt er þó að vindstrengurinn gangi ekki inn á landið af fullum styrk, en vindhraði mældist allt að 25 metrum á sekúndu út af Vestfjörðum í gærkvöldi. Viðbúnaðarstig vegna snjóflóða er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og ætla Almannavarnir og Veðurstofan að meta stöðuna klukkan átta. Ekki er vitað til þess að neinir vegfarendur hafi lent í vandræðum á svæðinu vegna ófærðar í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×