Innlent

Enn óveður víða um land

Enn er óveður í Staðarsveit og á Laxárdalsheiði og stórhríð á Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum er óveður á Klettshálsi, Gemlufallsheiði og á Steingrímsfjarðarheiði og þungfært í Ísafjarðardjúpi.

Á Norðurlandi er ófært um Þverárfjall og þæfingur á Öxnadalshei, sömuleiðis á Möðrudalsöræfum og Vopnafirði og það er þæfingur á Fjarðaheiði. Víðast hvar er verið að moka, en sums staðar er þess beðið að veður lægi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×