Kjúklingum stolið úr frystikistu 27. júní 2009 03:30 Eftir áramót verður sýnt í Þjóðleikhúsinu verkið Hænuungarnir í leikstjórn Stefáns Jónssonar. fréttablaðið/anton „
Þetta er afskaplega fyndið eins og Braga einum er lagið, alveg óþolandi fyndið eiginlega,“ segir leikstjórinn Stefán Jónsson. Eftir áramót verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Hænuungarnir eftir Braga Ólafsson í leikstjórn Stefáns. Með aðalhlutverkið fer Eggert Þorleifsson en eins og margir muna eflaust eftir naut síðasta leikrit þeirra þriggja, Belgíska Kongó, mikilla vinsælda. „Þetta er í raun og veru framhald af góðum kynnum okkar Eggerts og Braga í Belgísku Kongó. „Þetta er ekki framhaldsleikrit en þetta er framhald á því samstarfi sem tókst með miklum ágætum,“ segir Stefán. „Við höfðum voðalega gaman hver af öðrum þótt við höfum svo sem þekkst allir fyrir þann tíma. Við náðum saman og ákváðum að gera eitthvað í framhaldinu og það er loksins að líta dagsins ljós núna.“ Verkið Hænuungarnir er mjög frábrugðið Belgísku Kongó þrátt fyrir að sömu menn séu þar á bak við. „Á meðan Belgíska Kongó gerist á elliheimili gerist þetta í fjölbýlishúsi og hverfist um húsfund sem er verið að halda vegna þess að komið hefur upp þjófnaður í sameigninni. Frosnum kjúklingum hefur verið stolið úr frystikistunni í geymslunni og það þarf að rannsaka það mál,“ segir Stefán. „En það má segja að þetta fjalli um fólk sem múrar sig inni í fílabeinsturni. Þetta er ákveðin útlistun á týpum af ’68-kynslóðinni; fólki sem gefur sig út fyrir að vera víðsýnt og „líbó“ en er þröngsýnt og fordómafullt.“ Með önnur hlutverk fara Ragnheiður Steindórsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Örn Árnason, Friðrik Friðriksson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira