Niðurskurðarhnífurinn hátt á loft 19. júní 2009 07:06
Frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjámálum var lagt fram á Alþingi í gærkvöldi. Í frumvarpinu er leitað leiða til þess að bæta stöðu ríkissjóðs eftir bankahrunið og með ýmsum aðgerðum er stefnt að því að ríkið fái 13 milljarða króna í auknar tekjur á þessu ári. Að þessu viðbættu er einnig stefnt að miklum sparnaði í rekstri ríkisins og greinir Fréttablaðið frá því að meðal annars verði ferðakostnaður á næsta ári aðeins helmingur þess sem hann var hjá ríkinu í fyrra. Þá á að lækka útgjöld vegna stjórna og nefnda um helming og forðast í lengstu lög að ráða utanaðkomandi ráðgjafa til ríkisins. Þá var lagt fram frumvarp í gær þess efnis að laun yfirmanna ríkisstofnana og -fyrirtækja verði felld undir kjararáð og fara á sérstaklega yfir laun ríkisstarfsmanna með mánaðartekjur yfir 400 þúsund krónum og lækka hlutfallslega mest laun þeirra sem hafa hæstu launin. Aksturskostnaður og risna verða skorin niður. Ríkisstjórnin hyggst spara 5,5 milljarða í almannatryggingakerfinu, til dæmis með lækkun á frítekjumarki ellilífeyrisþega úr 1,3 milljónum króna í 489 þúsund krónur. Draga á úr framlögum til þjóðkirkjunnar um 450 milljónir og 420 milljónir sparist með því að hámarksgreiðsla úr fæðingarorlofssjóði verði 350 þúsund krónur. Virðisaukaskattur á sumar matvörur, á borð við sykur, sem áður báru sjö prósenta skatt, verður eftirleiðis 24,5 prósent, svo dæmi séu tekin.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Sjá meira