Síðustu forvöð að gefa peysu 19. janúar 2009 05:00 Kolla og Heimir lýsa eftir ullarfatnaði handa eldri borgurum sem lifa við kulda og vosbúð í vetrarhörkunni í Bretlandi.
Söfnun á íslenskum ullarfatnaði, lopapeysum, lopasokkum, lopavettlingum, húfum og lopateppum til þurfandi eldri borgara í Bretlandi fer senn að ljúka. Tekið verður við ullarflíkum hjá Samskipum og á Bylgjunni í dag og á morgun. Vonir standa til að hægt verði að afhenda heilan gám af hlýjum og góðum íslenskum ullarfatnaði í Bretlandi í næstu viku. Forsprakkar söfnunarinnar eru útvarpsmennirnir Kolla og Heimir, Kolbrún Björnsdóttir og Heimir Karlsson, sem stýra þættinum Í bítið á Bylgjunni. Heimir segir að söfnunin hafi gengið mjög vel en „við viljum meira. Við viljum koma með eins mikið magn og við getum þannig að við vekjum eins mikla athygli og hægt er þegar við afhendum þetta,“ segir hann. Hugmyndin kom upp af tilviljun í símaviðtali á Bylgjunni einn morguninn nýlega. Í Bretlandi hafa verið fréttir um að tólf eldri borgarar deyi beint eða óbeint úr kulda og vosbúð á klukkustund. Heimir segir að síðasta áratug hafi 260 þúsund eldri borgarar dáið af þessum sökum og frá febrúar fram í mars í fyrra hafi yfir 25 þúsund dáið. Afar kalt hafi verið í vetur. Heimir hefur verið í sambandi við samtök eldri borgara í Bretlandi og fengið einkar góð viðbrögð þaðan.- ghs
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira