Innlent

Hátt í þúsund mótmælendur við Þjóðleikhúskjallarann

Hátt í 1000 mótmælendur eru nú fyrir utan þjóðleikhúskjallarann þar sem flokksfundur Samfylkingarinnar stendur nú yfir. Sem fyrr kyrja mótmælendurnir slagorð og slá á eldhúsáhöld, trommur og annað sem framleitt getur hávaða.

Fjöldi lögreglumanna er á svæðinu en ekki mun hafa slegið í brýnu milli hópanna enn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þó eitthvað um að mótmælendur kasti eggjum og þvílíku í lögreglumenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×