Fjörutíu milljónir í samgöngumiðstöð 7. desember 2009 04:00 Þessi mynd úr safni blaðsins er frá árinu 2006 og sýnir hugmynd að samgöngumiðstöð í Reykjavík frá Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar.mynd/úr safni
Opinbera hlutafélagið Flugstoðir hefur eytt 38 milljónum króna í undirbúning samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll síðan 2007. Áður en Flugstoðir voru stofnaðar sinnti Flugmálastjórn hlutverki þeirra. Flugmálastjórn varði 815.097 krónum í verkefnið árið 2006, en engu árin 2004 og 2005. Þá er ótalinn kostnaður sem liggur í vinnu starfsfólks samgönguráðuneytis og starfsfólks Reykjavíkurborgar, en hann mun vera óverulegur. Þó gætu einhverjar milljónir falist í hönnunarvinnu vegna lóðarinnar. Líkt og heyrst hefur íhugar samgönguráðherra nú annan kost; að endurbyggja núverandi flugstöð og hverfa alveg frá stórri samgöngumiðstöð. Umferðarmiðstöð BSÍ yrði á sínum stað. Formaður skipulagsráðs borgarinnar er þessu ekki afhuga. Þó greiddu allir borgarfulltrúar, fyrir utan Ólaf F. Magnússon, atkvæði gegn því í vikunni að festa flugvöllinn í sessi. Landssamtök lífeyrissjóða vilja fjármagna hvorn kostinn sem er, flugstöð eða samgöngumiðstöð, og bíða þess að ríki og borg taki ákvörðun. Borgin segist vinna að samgöngumiðstöð þar til erindi berist frá ráðherranum. Fyrrgreindur kostnaður Flugstoða liggur í vinnu arkitekta, ráðgjöf, þarfagreiningu, gerð reiknilíkana og öðru. Sigrún Traustadóttir, fjármálastjóri hjá Flugstoðum, segist ekki líta svo á að þetta sé glatað fé, þótt ekkert verði úr samgöngumiðstöðinni. Féð hafi farið í að ígrunda málin vel áður en farið yrði út í stórframkvæmd. Þess má geta að Flugstoðir velta um þremur milljörðum á ári. Þær upplýsingar fengust í samgönguráðuneytinu að Flugstoðir hefðu borið meginþungann af þróunarvinnu samgöngumiðstöðvar. Kostnaður ráðuneytisins fælist í tíma starfsfólks og hugmyndavinnu. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingar, hefur bent á að kostnaður vegna lóðarinnar við Hlíðarfót, þar sem samgöngumiðstöðin átti að vera, nemi 450 milljónum á árinu. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, hefur hafnað beintengingu þess kostnaðar við samgöngumiðstöðina. Kostnaðurinn deilist einnig á Háskólann í Reykjavík og fleiri verkefni.klemens@frettabladid.is
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira