Segir bréfið sýna hve vel hagsmuna Íslands var gætt 8. desember 2009 04:15 Leiðtogar stjórnarandstöðunnar, Bjarni Benediktsson, Birgitta Jónsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, funda í Alþingishúsinu.fréttablaðið/gva
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir eðlilega hafa verið staðið að samskiptum Indriða H. Þorlákssonar, þáverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, og Marks Flanagan, yfirmanns sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi, og Franeks Rozwadowski, fulltrúa sjóðsins hér á landi. Indriði sendi þeim tölvubréf og óskaði stuðnings við nýja hugmynd um lausn Icesave-deilunnar. „Bréfið, sem hefur verið alþingismönnum aðgengilegt frá í sumar, er mjög góður vitnisburður um hvernig verið var að reyna að gæta okkar hagsmuna og halda öllu til haga, þar á meðal hryðjuverkalögum Breta. Þannig var reynt að þvinga málið í betri farveg en það var í,“ segir Steingrímur. Hann segir bréfið árétta að fyrri hugmyndir um lausn málsins séu óásættanlegar og AGS sé haldið upplýstum um gang málsins. Steingrímur segist hafa upplýst utanríkismálanefnd um stöðu mála og muna vel eftir fundi í apríl þar sem þessi sjónarmið hafi verið reifuð. „Ég man vel eftir umræðum í utanríkismálanefnd sem urðu í framhaldinu, þar sem menn ræddu stöðuna og möguleikana. Það var gert út frá því að menn væru enn að leita lausna á grundvelli pólitísks samkomulags, samanber þann farveg sem málið var sett í í vetur.“ Í bréfi Indriða segir að ómögulegt sé að komast að samkomulagi í þeim dúr sem um hafi verið rætt fyrir kosningar í apríl og „mögulega erfitt í þónokkurn tíma eftir kosningar...“ Bréfið var sent 13. apríl. Indriði segir þarna vísað til þess að Bretar og Hollendingar hafi mjög þrýst á lausn í anda minnisblaðs sem undirritað hafi verið í nóvember. Það hafi kveðið á um 6,7 prósent vexti. „Þarna leggjum við til nýja nálgun og tökum fram að samningar á fyrri grunni séu pólitískt ómögulegir fyrir kosningar og líklega lengi eftir þær. Þetta er undirstrikað til að leggja meiri áherslu á að fyrri nálgun dugaði ekki.“ Nokkra athygli hefur vakið að Indriði gaf persónulegt netfang sitt upp í lok bréfsins. Það var gert, að hans sögn, vegna þess að hann var á ferðalagi í Kaupmannahöfn og hafði betri aðgang að því pósthólfi. Svarbréfið hafi komið á embættisnetfang sem hann hafi komist í í gegnum kerfi í íslenska sendiráðinu. Indriði segir engin samskipti hafa orðið á milli hans og fulltrúa sjóðsins á hans persónulega netfangi. kolbeinn@frettabladid.is steingrímur j. sigfússon
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira