Fundað á heimilum Geirs og Ingibjargar 25. janúar 2009 15:28
Algjör óvissa ríkir um hvort ríkisstjórnin lifi út daginn og er talið allt eins líklegt að stjórnarslit verði áður en þessi sólarhringur er allur. Forystumenn stjórnarflokkanna áttu klukkustundarlangan fund á heimili Geirs H. Haarde forsætisráðherra í hádeginu um framhald samstarfsins. Geir sagði við fréttamenn að loknum fundi að engin niðurstaða lægi fyrir og sagði óvíst að ríkisstjórnin héldi velli. Af svörum Ingibjargar Sólrúnar að fundi loknum varð heldur ekki ráðið hvað gerast muni á næstu klukkustundum. Talið er að samfylkingarmenn hafi lagt fyrir sjálfstæðismenn tillögur sem þeir óski svara við áður en dagur er kveldi kominn og að sjálfstæðismenn ræði nú viðbrögð við þeim. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Geir hafa fundað frá því að fundinum með Ingibjörgu lauk. Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, bættist í hópinn á þriðja tímanum. Á meðan fundar Ingibjörg Sólrún á heimili sínu í Vesturbænum með Ágústi Ólafi Ágústssyni, Lúðvíki Bergvinssyni, Össuri Skarphéðinssyni og Skúla Helgasyni, framkvæmdastjóra flokksins. Líklegt þykir að forystumenn stjórnarflokkanna hittist á ný síðar í dag. Á meðan eru forystumenn stjórnarandstöðunnar í viðbragðsstöðu og talið líklegt að miklar þreifingar séu í gangi um hvað taki við, fari svo að ríkisstjórnin falli í dag.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira