Innlent

500 ára gamalt koparlóð fannst við Þingvallakirkju

Margrét með koparlóðið sem hún fann í sólinni á Þingvöllum í morgun.
Margrét með koparlóðið sem hún fann í sólinni á Þingvöllum í morgun.
Á lokadegi fornleifauppgraftrar vestan við Þingvallakirkju morgun fann Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur, koparlóð í gólflagi við stoðarstein. Talið er að lóðið hafi verið notað í viðskiptum í búð fyrir árið 1500.

„Ég hef aldrei séð svona lóð sjálf en það heillegt og flott. Það verður gaman að fá aldursgreiningu," segir Margrét.

Lóðið vegur 252 grömm og er með hanka til að hengja það upp í vigt. Lóðið hefur að öllum líkindum verið notað í viðskiptum í búð sem Margrét hefur hefur undanfarnar vikur unnið í.

„Það er vel undir 1500 gjóskulaginu þannig það hefur týnst fyrir árið 1500," segir Margrét.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×