Innlent

Hádegisfréttum sjónvarpað

Hádegisfréttir verða í beinni útsendingu á Stöð 2, Bylgjunni og á Vísi í dag. Þingflokkar stjórnarflokkanna hittast á fundum núna klukkan tíu og búist er við því að eftir það ráðist framtíð ríkisstjórnarinnar endanlega.

Tekist er um ýmislegt í viðræðum flokkanna og segir Morgunblaðið í dag að helsti ásteytingarsteinninn sé vilji Samfylkingarinnar til þess að taka að sér forsætisráðuneytið.

Fréttablaðið segir hins vegar að krafa Sjálfstæðisflokksins sé sú að samþykkja stóraukinn niðurskurð í ríkisútgjöldum á meðan Samfylkingin krefjist stjórnarskrárbreytinga og nýrrar stjórnar í Seðlabankanum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×