Allt á suðupunkti - vildu ekki tala fyrir VG 5. október 2009 18:29
Gríðarleg ólga er innan Vinstri grænna vegna afsagnar Ögmundar Jónassonar úr ráðherrastól og ekki er útilokað að flokkurinn klofni. Fari svo mun ríkisstjórnin springa. Ögmundur, sem og formaður þingflokks Vinstri grænna, báðust undan því að taka til máls fyrir hönd flokksins í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld. Ögmundur Jónasson, hefur verið talsmaður þess hóps innan þingflokks Vinstri grænna sem er andsnúinn Icesave samkomulaginu og samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Afsögn hans í síðustu viku hefur valdið gríðarlegri ólgu innan Vinstri grænna og er talin verulega hætta á að flokkurinn klofni í kjölfarið. Það er til marks um þá ólgu sem nú ríkir að fyrirhuguðum þingflokksfundi Vinstri grænna sem átti að halda í dag var frestað án skýringa. Þá baðst Ögmundur undan því að taka til máls fyrir hönd vinstri grænna í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í kvöld. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks Vinstra grænna, treysti sér heldur ekki til að verja stefnu ríkisstjórnarinnar. Ögmundur sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann teldi óheppilegt að hann tæki að sér að tala fyrir hönd vinstri grænna þar sem honum hafi nánast verið vísað á dyr út úr ríkisstjórninni. Heimildarmenn sem fréttastofa talaði við í dag segja að ástandið í flokknum sé nú á suðupunkti. Fari svo að Vinstri grænir klofna er ljóst að dagar ríkisstjórnarinnar eru taldir. Fjórir þingmenn munu væntanlega fylgja Ögmundi en það eru þau Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason. Ögmundur sagðist þó enn styðja ríkisstjórnina í samtali við fréttastofu í dag og sagðist ennfremur ætla að ræða við Steingrím J. Sigfússon, formann flokksins þegar hann snýr aftur frá fundi Alþjóðgjaldeyrissjóðsins seinna í þessari viku.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Sjá meira