Léku frummenn í alþjóðlegri auglýsingu 23. júní 2009 03:00 ólafur darri og atli rafn sem frummenn Auglýsingin fjallar um það þegar frummaðurinn kemst í snertingu við hátæknina. „
Þetta er auglýsing fyrir LG. Sem er alþjóðlegt fyrirtæki. Þeir framleiða meðal annars síma og þetta er sjónvarpsauglýsing fyrir nýjan háþróaðan síma. Míní-bíómynd sem fjallar um það þegar frummaðurinn kemst í snertingu við hátæknina,“ segir Einar Sveinn Þórðarson hjá Pegasus. Um helgina síðustu var hér tökulið frá frönskum framleiðanda sem var að taka upp sjónvarpsauglýsingu fyrir stórfyrirtækið LG. Pegasus var framleiðandi hér á Íslandi. Að sögn Einars Sveins komu fjölmargir Íslendingar að málum, meðal annars tíu manna hópur leikara og dansara sem brugðu sér í líki frummannsins. Leikararnir Ólafur Darri og Atli Rafn léku frummenn. Að sögn Ólafs Darra má hann ekkert tjá sig um auglýsinguna vegna ákvæða í samningi sem hann skrifaði undir. Þá voru hér hvorki meira né minna en átta gervasérfræðingar og með þeim starfaði gervamaðurinn Stefán Jörgen – einn fremsti gervasérfræðingur landsins. Einar Sveinn vill ekki nefna neinar kostnaðartölur en segir þó fyrirliggjandi að þetta hafi verið umfangsmikil framleiðsla. Og kærkomnar gjaldeyristekjur. „Leikstjóri auglýsingarinnar er Zavier Mairess, sem er vinsæll auglýsingaleikstjóri frá Belgíu,“ segir Einar Sveinn. Ekki er vitað hvenær auglýsingin verður sýnd.- jbg
Mest lesið Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið „Við erum öll dauð hvort sem er“ Lífið Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar Lífið 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Fleiri fréttir Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Sjá meira