Listamenn ósáttir við val á borgarlistamanni 19. júní 2009 06:00 Þau Ágúst Guðmundsson og Áslaug Thorlacius lögðu fram bókun þegar menningar- og ferðamálaráð hafði útnefnt Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuð sem borgarlistamann.
Áheyrnarfulltrúar Bandalags íslenskra listamanna, BÍL, í menningar-og ferðamálaráði lögðu fram bókun við þá ákvörðun að Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkurborgar. Allir kjörnir fulltrúar menningar- og ferðamálaráðs greiddu útnefningunni atkvæði sitt. Í bókun áheyrnarfulltrúanna kemur fram að ástæðulaust sé fyrir menningar-og ferðamálaráð að leita út fyrir Bandalag íslenskra listamanna en félagar í BÍL eru þrjú þúsund. „Borgarlistamaður er heiðursnafnbót sem jafnframt fylgir peningaupphæð. Á þeim tímum þegar mjög þrengir að hjá listamönnum, jafnvel meira en hjá flestum öðrum starfsstéttum er mikilvægt að listamenn hljóti þó það sem listamönnum ber," segir í bókuninni. Jafnframt er tekið skýrt fram að ekki sé verið að vega að Steinunni Sigurðardóttur í bókuninni. „Enda hefur hún þegar fengið margvíslega og verðskuldaða viðurkenningu fyrir störf sín." Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er þetta í fyrsta skipti í mörg ár sem fram kemur bókun frá áheyrnarfulltrúum BÍL þegar borgarlistamaður er tilnefndur. Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri var annar áheyrnarfulltrúanna frá BÍL. Hann sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki ætla að taka það hlutverk að sér að skilgreina orðið listamaður. „Borgarstjórn vill þó greinilega túlka það hugtak á víðari hátt en við." Ágúst segist hafa viljað að borgarlistamaður kæmi úr hefðbundnari hópi listamanna og bendir í því samhengi á að aðildarfélögin að BÍL séu fjórtán. „Margir íslenskir hönnuðir eru að gera það gott á erlendum vettvangi og þá ekki síst Steinunn. Okkur finnst full ástæða til að meta það að verðleikum en útnefning borgarlistamanns er ekki rétti vettvangurinn fyrir það." Fulltrúar meirihlutans í menningar- og ferðamálaráði lögðu fram bókun í kjölfar þessa og þar kemur fram að í reglum um útnefningu borgarlistamanns sé þess ekki getið að sá sem hljóti útnefningu þurfi að tilheyra félagi Bandalags íslenskra listamanna né öðrum fagfélögum. Á fundinum, sem haldinn var hinn 11. júní en var trúnaðarmál allt þar til í gær, kom jafnframt fram tillaga um að stofna til sérstakra Hönnunarverðlauna Reykjavíkurborgar. Fulltrúar listamanna lýstu yfir eindregnum stuðningi sínum við slík verðlaun.
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira