Kalla eftir hjálp fyrir þungaðar konur sem glíma við veikindi 7. desember 2009 19:45
Ekki eru til peningar til að ljúka endurbótum á húsnæði sem hýsa á barnshafandi konur sem glíma við veikindi á meðgöngu. Stór hluti sameinaðrar meðgöngu- og sængurkvennadeildar er ónýttur vegna þessa. Ljósmóðir og læknir á deildinni kalla eftir hjálp. Það stefnir í met fjölda fæðinga á þessu ári. Það hefur því verið erfitt að beita niðurskurðarhnífnum sem reiddur er yfir Landspítalanum á kvennadeildirnar. Í sumar var hafist handa við endurbætur á meðgöngu- og sængurkvennagangi en sá hluti hafði staðið nánast óbreyttur frá 1973. En ekki var til nægilegt fé til að ljúka framkvæmdunum. Þær Eva Ásrún ljósmóðir og Hildur Harðardóttir læknir töldu að ekki væri lengur hægt að una við þetta ástand og hafa þær stofnað félag sem á styrkja við Kvennadeildina. „Eftir er helmingurinn og það er áætlað að það muni kosta um 80 milljónir. Fyrsta verkefni þessa félags verður að safna þessum 80 milljónum og ljúka þessum endurbótum," segir Hildur Harðardóttir, læknir. Plássið sem ekki tókst að laga er yfir 100 fermetrar og er það nú vannýtt, en til dæmis er ekki hægt að koma sjúkrarúmum inn í herbergin. Vannýtt herbergin skjóta skökku við á sama tíma og nýbakaðir foreldra þurfa að deila herbergjum með fleirum og konum er gert að koma sjálfar með bindi og bleiur til að nota eftir fæðinguna. „Þetta er gamla vökudeildarhúsnæðið og það er brýnt verkefni að gera stofur svo fjölskyldan geti verið saman. Börnin eru með mæðrum sínum allan sólarhringinn og svo eru náttúrulega foreldrar sem eru með veik börn," segir Eva Ásrún Albertsdóttir, ljósmóðir. Hún hvetur fólk til að kíkja á heimasíðuna og skrá sig í félagið. Málefni snerti allar fjölskyldur í landinu. Upplýsingar um styrktarfélagið Líf má finna á síðunni www.styrktarfelagidlif.is
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira