Íslensk hross send til Mexíkó í fyrsta sinn 7. desember 2009 02:00 Talsvert umstang er í kringum það að flytja hross til annarra landa allt árið um kring. En svo gefast rólegri stundir inni á milli eins og þessi mynd ber með sér.
Sjö folöld eru nú á leiðinni frá Íslandi til Mexíkó. Þetta ungviði er fyrstu íslensku hrossin sem flutt eru héðan þangað til lands. Þau eru í löngu og ströngu ferðalagi, því það tekur að minnsta kosti tíu daga með hvíldarstoppum. Það er hin kunna hestakona Hulda Gústafsdóttir á Árbakka í Rangárvallasýslu sem hafði veg og vanda af útflutningnum. Ásamt eiginmanni sínum, Hinriki Bragasyni, rekur hún fyrirtækið Hestvit ehf. sem annast meðal annars útflutning hrossa. „Þetta kom þannig til að þýsk kona sem búsett er í Mexíkó hafði samband við mig,“ greinir Hulda frá. „Hún bað mig um að aðstoða sig við að finna út úr því hvernig hægt væri að flytja hross frá Íslandi til Mexíkó. Hún var búin að ákveða að reyna þetta en var ekki komin með tengilið hingað til lands, annan en þann sem hún var að hugsa um að kaupa folöldin af. Hún vildi ekki festa sér þau fyrr en hún sæi fram á að þetta væri hægt.“ Þegar ljóst var að hægt væri með góðu móti að flytja hross um þennan langa veg keypti konan, Regina Hof, folöldin sjö. Um er að ræða tvö hestfolöld og fimm hryssur. Þau eru litskrúðug mjög, meðal annars moldótt, skjótt og leirljós. Regina átti íslensk hross meðan hún bjó í Þýskalandi og Hulda segir hana greinilega hafa langað til að breiða útfagnaðarerindið í Mexíkó eftir að hún var flutt þangað. Hulda segir að Regina hafi jafnvel verið að íhuga að senda folöldin með flugi til Evrópu og svo þaðan til Mexíkóborgar. „Við könnuðum þennan möguleika, en sáum svo að það var auðveldara að senda þau eftir öðrum leiðum,“ segir Hulda. Folöldin fóru því með flugi hinn 25. nóvember til New York, þar sem þau þurftu að dvelja í þrjá daga í einangrun. Nú eru þau á leiðinni gegnum Bandaríkin í flutningabílum með hvíldarviðkomu á nokkrum stöðum. „Þeim heilsast vel og við hlökkum til að frétta af þeim þegar þau eru komin á áfangastað,“ segir Hulda. Spurð hvort hún viti hvort íslenskir hestar séu fyrir í Mexíkó kveðst hún ekki vita til þess að svo sé. Þá hafi Regina grennslast fyrir um það eftir að hún flutti og enn ekki fundið neina Íslandshesta. „En nú segist hún vita hvernig flytja eigi hross frá Íslandi til Mexíkó og það er helst á henni að heyra að folöldin verði bara fyrsta sendingin af fleirum á milli landanna.“jss@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira