Ráðuneytum fækkað um eitt og uppstokkun á öðrum Telma Tómasson skrifar 8. maí 2009 12:04
Ráðuneytum verður fækkað um eitt, samkvæmt tillögum starfshóps um breytingar á stjórnarráði, og tilfærslur á verkefnum verða umtalsverðar. Starfshópur um breytingar á stjórnskipaninni hefur síðustu vikur verið að störfum í tengslum við stjórnarmyndunarviðræðurnar. Skilaði hópurinn tillögum til formanna Samfylkingar og Vinstri grænna sem innlegg við gerð stjórnarsáttmálans, sem væntanlega verður gerður opinber um helgina. Tillögurnar ganga út á leiðir sem mælt er með að farið verði við uppstokkun á ráðuneytunum, með meiri skilvirkni að markmiði. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þar í fyrsta lagi hugmyndir um atvinnumálaráðuneyti - en undir það myndu heyra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytin og stærstur hluti iðnaðarráðuneytis. Við þá breytingu myndi fækka um eitt ráðuneyti - færu þau þá úr tólf, sem þau eru nú, í ellefu. Í öðru lagi yrði sérstöku efnahags- og viðskiptaráðuneyti komið á fót, en þangað yrðu færðar þær deildir fjármála- og forsætisráðuneyta sem komið hafa að efnahagsmálum og sameinaðar viðskiptaráðuneytinu. Engin fækkun ráðuneyta þar, aðeins tilfærsla verkefna. Og í þriðja lagi er öflugt umhverfis- og auðlindaráðuneyti á teikniborðinu. Þangað færu auðlindahlutar sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneytanna, sem myndu koma til viðbótar við núverandi umhverfisráðuneyti. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þó ólíklegt að þetta komi til framkvæmda strax heldur muni breytingar verða gerðar í áföngum, samhliða fjárlagavinnu og taka gildi í fyrsta lagi um næstu áramót. Einnig skal taka fram að til að þetta nái fram að ganga þarf að breyta reglugerð um stjórnarráð, en hún hefur ígildi laga og þarf samþykkt Alþingis. Heimildir fréttastofu herma að þarna verði þó ekki staðar numið heldur sé stefnt að frekari hagræðingu og að til standi að fækka um eitt ráðuneyti enn í framtíðinni, þannig að þau yrðu tíu þegar uppi væri staðið.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira