Skaut köttinn Carras með haglabyssu á Húsavík 8. maí 2009 17:51 Kötturinn Carras var skotinn innanbæjar með haglabyssu. Eigandinn, Huld, afar ósátt.
Meindýraeyðir á Húsavík skaut köttinn Carras innabæjar á þriðjudagskvöldinu en eigandinn, Huld Hafliðadóttir, er afar ósátt við aðfarirnar. Samkvæmt reglugerð sem bærinn hefur sett þá er lausaganga katta bönnuð í bænum. „Ég frétti af því frá nærliggjandi íbúum að þeir hefðu heyrt tvo skothvelli," segir Huld sem áttaði sig ekki strax á málinu en hún á tvo ketti. Sá sem lifði af skilaði sér heim daginn eftir kattardrápið en hún sagði hann hafa verið verulega illa farinn. Huld fór með hann til dýralæknis sem sagði dýrið vera í nokkurs konar taugaáfalli. „Ég fór þá að pressa á bæjaryfirvöld og meindýraeyðinn um upplýsingar um afdrif kattarins. Allr neituðu að hafa komið að þessu og bentu á hvorn annan," segir Huld en hún fékk þó að lokum játningu frá meindýraeyðinum. „Hann játaði að hafa skotið köttinn en sagðist hafa gert það í skjóli bæjaryfirvalda," segir Huld og bætir við að meindýraeyðirinn hafi sýnt henni leyfi sem hann hafi frá lögreglunni á Húsavík til þess að bera og beita skotvopnum innanbæjar. Huld segist vera reið bæjaryfirvöldum fyrir að beita slíkum úrræðum við að losa ketti af götum bæjarins. Hún segir að þetta geti nú sennilega ekki staðist lög. Um aflífun dýra í lögum um dýravernd segir orðrétt: Dýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti og eftir því sem unnt er án þess að önnur dýr verði þess vör. Sjálf segist Huld reiðust yfir því að enginn hafi beðist afsökunar á að skjóta dýrið. Hún sé sár, og finnist málið undarlegt í ljósi þess að enginn vill gangast við kattardrápinu að hennar sögn. Hún spyr líka hvort það sé eðlilegt að menn séu að hleypa af haglabyssum í íbúðahverfum. Aðspurð hvað hún hyggist gera í málinu svarar hún: „Ég ætlaði ekki að gera neitt. En núna ætlum við að fá lögfræðiálit á málinu." Huld segir það leiðinlegt að missa köttinn Carras og þá sérstaklega með þessum hætti. Hún bætir svo við að lokum: „Þetta er bara villimennska."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Sjá meira