Össur kallar breska sendiherrann á sinn fund Höskuldur Kári Schram skrifar 8. maí 2009 11:59
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að kalla breska sendiherrann á sinn fund vegna ummæla Gordons Browns forsætisráðherra Bretlands um ábyrgð Íslands gagnvart því að Christie spítalinn í Manchester hafi tapað fé hjá Kaupþingi í Bretlandi. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sagði í fyrirspurnartíma í Breska þinginu á miðvikudaginn að Bretar ættu í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um hversu hratt Íslendingar endurgreiði breskum stjórnvöldum vegna innlána. Ummælin voru í tengslum við innistæður Christies sjúkrahússins í Manchester hjá Kaupthing Singer og Friedlander. Sá banki var hins vegar breskur og undir eftirliti breska fjármálaeftirlitsins. Ummæli Gordon Brown voru rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði ljóst að breski forsætisráðherran hafi farið með rangt mál. Hann segist ætla að kalla breska sendiherrann á Íslandi á sinn fund til þess að ræða ummæli forsætisráðherrans. „Ég er mjög hissa á því hvernig hann tók þarna til orða," sagði Össur, en tók þó fram að ekki væri tilefni til að slíta stjórnmálasambandi við Breta vegna málsins. Hann segir einnig alvarlegt að Brown skuli segja að Bretar séu í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn vegna Icesave málsins. Það sé eitthvað sem þurfi að skoða mjög vel enda eigi AGS enga aðild að þeim viðræðum.Hann segist því ætla að ganga eftir því að fá svör við þessum yfirlýsingum Brown hjá AGS.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Sjá meira