Innlent

Í fangelsi fyrir að þykjast vera eldri maður

Landamæralögreglan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði sómalskan karlmann, Omar Abdi Yasin fæddan árið 1980, við vegabréfaeftirlit í Leifsstöð þann 3.maí síðast liðinn. Omar framvísaði sænsku vegabréfi manns að nafni Faisal Hussein Abdi, fæddum árið 1963, í blekkingarskyni.

Omar játaði skýlaust brot sitt fyrir dóminum en með játningu hans þykir sannað að hann hafi gerst sekur um fyrrgreindra háttsemi.

Hann var því dæmdur í 30 daga fangelsi og þarf að greiða málsvarnarlaun verjanda síns að fjárhæð 87,150 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×