Innlent

Undirrituðu samkomulag til að skapa atvinnumöguleika

Ísland og Manitobafylki í Kanada undirrituðu samkomulag sem skapar atvinnumöguleika fyrir Íslendinga í Manitoba til eins árs. Sjúkratrygging fæst frá fyrsta degi, börn fá skólavist og makar atvinnuleyfi líka.

„Við munu leita eftir faglærðu fólki í upplýsingatæknigeiranum og í byggingageiranum en í þeim síðarnefnda er mikil uppgangur í Manitoba þar sem mörg verkenfi tengd uppbyggingu innviða og grunngerðar samfélagsins eru í gangi. Við munu einnig leita eftir fólki til starfa í orkugeiranum," segir Nancy Allan - ráðherra atvinnu- og innflytjendamála í Manitoba.

Nancy Allan segir að vissulega sé atvinnuleysi í Manitoba og gagnrýni á þetta frumkvæði fylkisins því komið fram en það sé eftirspurn eftir faglærðu fólki. Áfram verði þó farið eftir reglum um að leita fyrst eftir Manitobabúum í störf en takist það ekki verði leitað út fyrir landsteinana.

Félagsmálaráðherra segir að í fyrstu hafi hvarflað að henni að verið væri að hvetja Íslendinga til að flytja úr landi. „Það er alls ekki svo. Þetta er bara svipað og þegar fólk fer utan til framhaldsnáms sem Íslendingar gera mikið. Þá kemur fólkið yfirleitt heim og ég geri ráð fyrir að fólk komi til baka og skili til samfélagsins þeirri reynslu sem það hefur fengið í Kanada," segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra.

Tensl milli Manitoba og Íslands má rekja aftur til 1875 og þau hvergi skýrari en í Gimli þar sem íslenskum fánum er flaggað. „Og fólkið hugsar mjög mikið til Íslands og Íslendinga og sérstaklega núna á þessu erfiða tímabili. Og fólkið er mikið búið að tala um og spá í hvernig það geti hjálpað eða hvað það geti gert fyrir Íslendinga," segir Tammy Axelsson, bæjarstjóri í Gimli.

Vinnumálastofnun annast verkefnið fyrir Ísland og verður það kynnt síðar í mánuðinum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×