Hrefnan étur mun meira af þorski og ýsu en áður var talið 5. mars 2009 10:09
Niðurstöður hrefnurannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar á árunum 2003-2007 benda til þess hrefnan éti árlega allt að 300.000 tonn af þorski og ýsu. Frá þessu er greint á heimasíðu LÍU og sagt að um fimmfalt meira magn að ræða en en eldri rannsóknir hafa leitt í ljós. Til samanburðar er nefnt að heildaraflamark þorsks og ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári er um 250.000 tonn. „Samkvæmt vegnu meðaltali var bolfiskur 26% innihalds hrefnumaga í umræddum rannsóknum," segir í frétt LÍU. Þar segir einnig að ýsa hafi reynst vera um 7 prósent magainnihaldsins, þorskur 8 prósent og annar bolfiskur 11 prósent. „Loðna reyndist aðeins um 8 prósent af fæðu hrefnunnar og síld 14 prósent. Áætlað er að hrefnan við landið éti árlega um 2 milljónir tonna af fiski." Það vekur athygli útvegsmanna hve stóran þorsk sé um að ræða. „Þorskurinn var að uppistöðu 4-8 ára gamall, 50-80 sm að lengd og ýsan var að jafnaði 5-6 ára, 45-55 sm að lengd. Þessar niðurstöður voru kynntar í erindi þeirra Gísla A. Víkingssonar, Anton Galan, Droplaugar Ólafsdóttur og Sverris D. Halldórssonar á Hafráðstefnu stofnunarinnar fyrir skömmu." Þá er bent á að rannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar sýni miklar breytingar í fæðusamsetningu hrefnu á árabilinu 1985-1995 annars vegar og svo 2003-2007 hins vegar. „Það bendir til þess að hún lagi sig að fæðuframboðinu í hafinu og éti í raun það sem hún kemst í hverju sinni."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Fleiri fréttir Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Sjá meira