Brjáluð þungarokksbomba 10. október 2009 06:00 Endurvakin Harðkjarnahljómsveitin Klink hefur verið endurvakin og heldur tónleika á Dillon í kvöld. „
Við vorum beðnir um að taka eina tónleika á Eistnaflugi í sumar, sem við gerðum. Eftir það ákváðum við að klára nokkur lög sem við höfðum samið en aldrei fullklárað og þess vegna var hljómsveitin endurvakin,“ segir Agnar Eldberg gítarleikari um endurkomu harðkjarnahljómsveitarinnar Klink sem mun spila á Dillon í kvöld ásamt hljómsveitunum Retrön og Celestine. Haukur Valdimar Pálsson mun fylla skarð bassaleikarans Árna Hauks Jóngeirssonar sem búsettur er í Danmörku. Bassafanturinn Þröstur Jónsson verður einnig fjarri góðu gamni því sá stundar sjómennsku af miklum móð þessa stundina. „Við erum svaka spenntir fyrir tónleikunum í kvöld, þetta verður brjáluð þungarokksbomba. Við ætlum að þrusa í gegnum sjö lög, það er ekki hægt að spila þungarokk í einn og hálfan tíma, ég held að það sé bara ekki á færi dauðlegra manna,“ segir Agnar, sem lofar gallsúrri stemningu. Hljómsveitin hefur ekki gefið út plötu síðan 666 gráður norður kom út og segir Agnar að verið sé að vinna að nýju efni. „Við erum að rifja upp gömul áður óútgefin lög og erum að semja nokkur til viðbótar. Þegar það er búið ætlum við að reyna að koma okkur í stúdíó einhvers staðar. Ef einhver hefur áhuga á að aðstoða okkur í þeim málum má sá hinn sami gefa sig fram.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30 og er aðgangseyrir 499 krónur.- sm
Mest lesið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Lífið Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Sjá meira