Sprotafrumvarp loksins fyrir Alþingi 10. október 2009 02:30 Fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon kynnti í gær tvíþætt stjórnarfrumvarp sem felur í sér endurgreiðslu á rannsókna- og þróunarkostnaði og skattafrádrátt vegna fjárfestinga í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. Fréttablaðið/GVA
Fjármálaráðherra kynnti í gær stjórnarfrumvarp fyrir nýsköpunar- og sprotafyrirtæki. Gangi það í gegn geta fyrirtækin fengið fimmtung rannsókna- og þróunarkostnaðar endurgreiddan og fjárfestar fengið ívilnanir vegna kaupa á hlutafé. „Þetta er æðislegt. Við höfum beðið eftir þessu í mörg, mörg ár,“ segir Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP, sem þróar og rekur fjölþátttökuleikinn EVE Online um stjórnarfrumvarp sem er á lokastigum hjá fjármála- og iðnaðarráðuneyti undir forystu forsætisráðuneytis. Það kann að verða lagt fyrir Alþingi á næstu dögum. Frumvarpið er tvíþætt og kveður á um að nýsköpunar- og sprotafyrirtæki geta sótt um endurgreiðslu á allt að tuttugu prósentum af rannsókna- og þróunarkostnaði auk skattalegra ívilnana fyrir fjárfesta sem kaupa hlutabréf nýsköpunar- og sprotafyrirtækja. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kynnti frumvarpið á fjárfestaþingi Seed Forum Iceland í gær. Það er sniðið að norskri fyrirmynd en varð þar að lögum fyrir um sjö árum. Álíka fyrirkomulag er þekkt víða um heim. „Þetta eru bestu aðgerðirnar sem geta stutt við nýsköpun og komið okkur út úr kreppunni,“ segir Davíð Lúðvíksson hjá Samtökum iðnaðarins, Davíð segir samtökin hafa kynnt leiðir sem þessar fyrir nokkrum árum en þær haft tilhneigingu til að daga uppi á borði fjármálaráðherra fyrri ríkisstjórnar þrátt fyrir að þær kunni að auka atvinnuþátttöku og skila hærri tekjuskatti í ríkiskassann. Hann bendir á að Ísland hafi verið aftarlega á merinni í þessum málum og sé með frumvarpinu verið að jafna hlut íslenskra fyrirtækja, sem sum hver hafi flutt til útlanda í leit að betra umhverfi. Skemmst er að minnast þess er Hilmar hjá CCP sagði, í samtali við tímaritið Tölvuheim árið 2005, fyrirtækið íhuga að flytja úr landi og fara þangað sem sambærilegar ívilnanir væru í boði og eru nú í smíðum hér. Ekkert varð úr flutningum. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Var á yfir 200 kílómetra hraða þegar slysið varð Innlent Fann sér ekki stað hjá forsetanum eftir breytingar Innlent Hætt eftir tveggja mánaða störf fyrir borgarstjóra Innlent Þota með á þriðja hundrað manns brotlenti í íbúðahverfi Erlent Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni Innlent Bandarískar herstöðvar verða reistar í Danmörku Erlent Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Erlent Gáfu fjölskyldu Víglundar draumavél feðganna Innlent „Fólk er í áfalli yfir þessu“ Innlent Telur að enginn hafi komist lífs af úr flugslysinu Erlent Fleiri fréttir Landlæknir sviptir Kalla Snæ lækningaleyfi Engum verið neitað um Fulbright-styrk á Íslandi Umferðarslys austan Selfoss Krefjast tveggja milljarða króna vegna vatnsleiðslunnar Gáfu fjölskyldu Víglundar draumavél feðganna Bein útsending: Skóli og nám í víðum skilningi - breytt heimsmynd Hætt eftir tveggja mánaða störf fyrir borgarstjóra Vill að Þorbjörg Sigríður dragi orð sín til baka „Mikilvægt skref“ að veita Bandaríkjunum aðgang að dönskum herstöðvum Flugu frá Frakklandi með tólf kíló af kókaíni Mannskaði á Indlandi og dagsektum beitt gegn SVEIT Fann sér ekki stað hjá forsetanum eftir breytingar Var lengi hikandi að selja Ratcliffe laxveiðijarðirnar Var á yfir 200 kílómetra hraða þegar slysið varð Hefja söfnun fyrir geðheilbrigðisúrræði í minningu Bryndísar Klöru Frekar ætti að styrkja forvarnir en reisa minnisvarða um þolendur ofbeldis Hávaðaútköll og maður með ólæti á dvalarheimili Ekki tíminn fyrir stjórnarandstöðu til að stunda tafarleiki „Óásættanlegt“ að ofbeldi fái ekki sömu athygli og veiðigjöld Erlendir ríkisborgarar rúmlega helmingur atvinnulausra Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni „Fólk er í áfalli yfir þessu“ Fjölmiðlafrumvarpið „ein allsherjarhefndarför gegn Morgunblaðinu“ „Þingið hefur verið svipt aðhaldi sínu“ Ógn loftslagsbreytinga við fæðuöryggi stórlega vanmetin Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Hvalurinn kominn út á haf Fastir í flugstöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Keflavík Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sjá meira