Barnabarn hjónanna aðstoðaði Arnarnesræningjana 28. apríl 2009 18:38
Tveir karlmenn sem rændu eldri hjón á Arnarnesi um helgina hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram í maí. Barnabarn hjónanna veitti ræningjunum upplýsingar sem leiddi til ránsins. Alls hafa fimm verið handteknir vegna ránsins á Arnarnesi um helgina en það er eitt það alvarlegasta sem komið hefur á borð lögreglu í áraraðir. Tveir menn brutust inn á heimili eldri hjóna grímuklæddir og vopnaðir og héldu heimilisfólki í gíslingu í um 20 mínútur. Annar mannanna veitti konunni þungt höfuðhögg með þeim afleiðingum að hún vankaðist. Eftir að hafa látið greipar sópa létu mennirnir sig hverfa en ekki fyrr en þeir höfðu skorið á símalínur og hótað hjónunum öllu illu hefðu þau samband við lögreglu. Auk ræningjanna tveggja sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í dag hafa þrjár konur verið handteknar grunaðar um aðild. Ein þeirra hefur játað en öllum þremur var sleppt í dag. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að barnabarn hjónanna á Arnarnesinu hafi gefið ræningjunum upplýsingar sem þeir notuðu við ránið. Fréttastofa hefur einnig heimildir fyrir því að lögreglan hafi komist á slóð ræningjanna þegar þeir reyndu að selja hluta þýfisins, þar á meðal hringa sem þeir hrifsuðu af fingrum konunnar, í skartgripaverslun í borginni.
Tengdar fréttir Fórnarlömb á Arnarnesi: Rólegri eftir handtökurnar „Ég er ótrúlega hress miðað við það sem á hefur gengið," segir kona á áttræðisaldri sem varð fyrir óhugnalegri árás á heimili sínu við Mávanes um helgina þegar fjórir einstaklingar tóku hana og eiginmann hennar til fanga á heimili þeirra. Búið er að handtaka þá sem tengdust málinu og hefur lögreglan farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Íbúar í hverfinu eru óttaslegnir vegna fréttanna. 28. apríl 2009 14:02 Arnarnesárásarmenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. maí Mennirnir sem réðust inn á heimili hjóna á Arnarnesi og hótuðu þeim lífláti hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. maí, 28. apríl 2009 13:54 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira
Fórnarlömb á Arnarnesi: Rólegri eftir handtökurnar „Ég er ótrúlega hress miðað við það sem á hefur gengið," segir kona á áttræðisaldri sem varð fyrir óhugnalegri árás á heimili sínu við Mávanes um helgina þegar fjórir einstaklingar tóku hana og eiginmann hennar til fanga á heimili þeirra. Búið er að handtaka þá sem tengdust málinu og hefur lögreglan farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Íbúar í hverfinu eru óttaslegnir vegna fréttanna. 28. apríl 2009 14:02
Arnarnesárásarmenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. maí Mennirnir sem réðust inn á heimili hjóna á Arnarnesi og hótuðu þeim lífláti hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. maí, 28. apríl 2009 13:54