Innlent

Saga Frjálslyndra er saga deilna og átaka

Fyrsta landsþingið. Sverrir Hermannsson, stofnandi Frjálslynda flokksins, var kjörinn formaður á landsþinginu 1999. fréttablaðið/pjetur
Fyrsta landsþingið. Sverrir Hermannsson, stofnandi Frjálslynda flokksins, var kjörinn formaður á landsþinginu 1999. fréttablaðið/pjetur

Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður seint í nóvember 1998 og bauð fram í fyrsta sinn í kosningunum 1999. Sverrir Hermannsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, stofnaði flokkinn ásamt fylgismönnum en Davíð Oddsson hafði fáum mánuðum áður gert Sverri að láta af starfi bankastjóra í Landsbankanum.

Kvótakerfið var sérstakt eitur í beinum Sverris sem beindi flokknum jöfnum höndum gegn því og Sjálfstæðisflokknum.

Í aðdraganda flokksstofnunar leit út fyrir að samtök sem vildu breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu myndu koma að stofnun flokksins. Upphófst mikil valdabarátta bak við tjöldin sem lyktaði með því að samtökin hrökkluðust frá borði.

Voru það fyrstu illdeilurnar í tengslum við Frjálslynda flokkinn en ekki þær síðustu.

Miklar vendingar urðu árið 2006 þegar Nýtt afl, undir forystu Jóns Magnússonar, var lagt inn í Frjálslynda flokkinn. Nýtt afl bauð fram í kosningunum 2003 og hlaut eins prósents fylgi.

Jón komst til talsverðra áhrifa innan flokksins og lét til sín taka. Umdeild varð blaðagrein hans undir yfirskriftinni Ísland fyrir Íslendinga? en í kjölfarið tóku frjálslyndir að daðra við það sem í daglegu tali nefnist rasismi. Mörgum flokksmönnum ofbauð slíkur málflutningur.

Deiluefnin í Frjálslynda flokknum hafa verið af margvíslegum toga en oftar en ekki hafa þau fremur virst á persónulegum nótum en faglegum.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Guðjóni A. Kristjánssyni formanni hvað eftir annað mistekist að lægja öldurnar innan flokksins. Kennir hann nú illdeilum, auk annars, um ófarirnar í kosningunum.

Óvíst er hver afdrif Frjálslynda flokksins verða en eins og sakir standa skartar flokkurinn þremur kjörnum fulltrúum; í sveitarstjórnum Ísafjarðar, Grindavíkur og Reykjavíkur.

bjorn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×