Saga Frjálslyndra er saga deilna og átaka 28. apríl 2009 05:00 Fyrsta landsþingið. Sverrir Hermannsson, stofnandi Frjálslynda flokksins, var kjörinn formaður á landsþinginu 1999. fréttablaðið/pjetur
Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður seint í nóvember 1998 og bauð fram í fyrsta sinn í kosningunum 1999. Sverrir Hermannsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, stofnaði flokkinn ásamt fylgismönnum en Davíð Oddsson hafði fáum mánuðum áður gert Sverri að láta af starfi bankastjóra í Landsbankanum. Kvótakerfið var sérstakt eitur í beinum Sverris sem beindi flokknum jöfnum höndum gegn því og Sjálfstæðisflokknum. Í aðdraganda flokksstofnunar leit út fyrir að samtök sem vildu breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu myndu koma að stofnun flokksins. Upphófst mikil valdabarátta bak við tjöldin sem lyktaði með því að samtökin hrökkluðust frá borði. Voru það fyrstu illdeilurnar í tengslum við Frjálslynda flokkinn en ekki þær síðustu. Miklar vendingar urðu árið 2006 þegar Nýtt afl, undir forystu Jóns Magnússonar, var lagt inn í Frjálslynda flokkinn. Nýtt afl bauð fram í kosningunum 2003 og hlaut eins prósents fylgi. Jón komst til talsverðra áhrifa innan flokksins og lét til sín taka. Umdeild varð blaðagrein hans undir yfirskriftinni Ísland fyrir Íslendinga? en í kjölfarið tóku frjálslyndir að daðra við það sem í daglegu tali nefnist rasismi. Mörgum flokksmönnum ofbauð slíkur málflutningur. Deiluefnin í Frjálslynda flokknum hafa verið af margvíslegum toga en oftar en ekki hafa þau fremur virst á persónulegum nótum en faglegum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Guðjóni A. Kristjánssyni formanni hvað eftir annað mistekist að lægja öldurnar innan flokksins. Kennir hann nú illdeilum, auk annars, um ófarirnar í kosningunum. Óvíst er hver afdrif Frjálslynda flokksins verða en eins og sakir standa skartar flokkurinn þremur kjörnum fulltrúum; í sveitarstjórnum Ísafjarðar, Grindavíkur og Reykjavíkur. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira