Þrettán ára nemandi réðst á smíðakennara 1. október 2009 12:45
Þrettán ára nemandi í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi réðst á smíða-og stuðningskennara sinn sem er á sextugsaldri í fyrradag. Kennarinn leitaði til læknis vegna brjóst-og kviðverkja eftir árásina. Kennarinn er fimmtíu og fimm ára og kennir smíði og er með stuðningskennslu í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Nemendur munu hafa verið með mikil ólæti í fyrradag og var kennarinn að reyna að stilla til friðar þegar unglingspiltur í níundabekk réðst á hann og lét þung högg dynja á honum. Kennarinn vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa náði tali af honum en taldi ekki líklegt að hann myndi kæra árásina til lögreglu. Samkvæmt heimildum fréttastofu leitaði hann til læknis í gær vegna brjóst- og kviðverkja. Hann mun einnig hafa verið töluvert lemstraður eftir árásina. Guðlaug Sturlaugsdóttir skólastjóri Valhúsaskóla segist ekki getað tjáð sig um einstök mál, hún harmi hins vegar þetta atvik og segir að brugðist verði við málinu samkvæmt reglum skólans. Móðir drengsins hafði samband við fréttastofu í dag og fullyrðir að hann hafi ekki ráðist á kennarann af fyrra bragði. Unglingarnir hafi verið í vatnsslag og til ryskinga hafi komið á milli drengsins og kennarans þegar kennarinn reyndi að stilla til friðar. Hún segir drenginn einnig hafa þurft að leita til læknis vegna líkamsáverka eftir átökin.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Fleiri fréttir „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Sjá meira