Konur að taka yfir Mýrarboltamótið 9. júlí 2009 03:00 Mýrarboltamótið á Ísafirði er orðið árviss viðburður um verslunarmannahelgina og konur virðast sérstaklega áhugasamar um að demba sér ofan í mýrina.Fréttablaðið/Vilhelm „
Við erum komnir með lið frá Kanada og svo hafa pólskir túristar boðað komu sína. Við erum í þeirra augum orðið eitthvert gósenland þar sem allt er nánast gefins,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur hins árlega Mýrarboltamóts sem haldið er á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Rétt er að taka fram að aðstandendur mótsins líta á það sem Evrópumeistaramótið en heimsmeistaramótið var haldið í Finnlandi um þarsíðustu helgi. Jóhann státar reyndar af þátttöku á því móti, keppti þá með sænska liðinu. „Við töpuðum öllum leikjunum, fengum alveg skelfilega dómgæslu. Mér var síðar sagt að Finnarnir hefðu dæmt miskunnarlaust á móti okkur til að hefna fyrir einhverja aldalanga kúgun.“ Jóhann bjóst þó ekki við liðum frá hinum Norðurlöndunum enda væru þau blönk eins og Íslendingar. Mýrarboltamótið var fyrst haldið árið 2004, vakti töluverða athygli og hefur verið haldið allar götur síðan þá. Þótt notaður sé fótbolti í leiknum á mýrarboltinn sjálfur lítið sameiginlegt við knattspyrnu. „Ef þú hefur getað tekið skærin einhvern tímann á græna vellinum þá nýtist það þér ekki í drullunni,“ útskýrir Jóhann en eftirsóttustu verðlaunin, merkilegt nokk, eru titillinn drullugasti keppandinn. Drullusokkurinn Jóhann segir konur sækja mikið í þessa íþróttagrein hér á landi. „Fyrsta árið voru þær svona tuttugu prósent, í fyrra voru þær fjörutíu og við reiknum með að þær geti orðið meira en helmingur þátttakenda í ár,“ segir Jóhann og bætir því við að þær leggi mikið upp úr búningum sínum. Áhugasamir geta enn skráð sig til leiks á heimasíðunni myrarbolti.com en mótið getur aðeins tekið við 350 manns. „Lokahófið annar ekki fleirum,“ segir Jóhann.
Mest lesið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira