Strandar á ríki og borg 2. desember 2009 06:30 Óvíst er hvenær ráðist verður í tvöföldun Suðurlandsvegar. Lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir með fjármagn en deilur stjórnarflokkanna um vegtolla eru enn óleystar. Þá er óvíst með samgöngumiðstöð í Reykjavík. fréttablaðið/gva
Lífeyrissjóðirnir eru í startholum með fjármagn fyrir samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni og tvöföldun Suðurlandsvegar. Óleyst mál innan stjórnar og á milli stjórnar og borgar standa í vegi fyrir framkvæmdum. Í stöðugleikasáttmálanum, sem undirritaður var í júní, er kveðið á um að ríkisstjórnin leiti til lífeyrissjóðanna til fjármögnunar stórframkvæmda. Þegar hefur verið samið um Landspítalann, en það er tugmilljarða króna verkefni. Óljóst er hvað verður um samgöngumiðstöð, en eins og Fréttablaðið greindi frá hafa Kristján Möller samgönguráðherra og Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, ámálgað aflagningu þess verkefnis og byggingu lítillar flugstöðvar í staðinn. Ekki hefur þó verið látið af hugmyndum um miðstöðina. Í fjármálaráðuneytinu hefur starfshópur verið í gangi um málið og er enn unnið að því þar. Þá eru í gangi viðræður á milli ríkis og borgar um makaskipti, þar sem lóðin sem nú er ætluð fyrir samgöngumiðstöð þykir ekki lengur henta. Þeim viðræðum er ekki lokið, en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að málið sé komið á nokkurn rekspöl. Lífeyrissjóðirnir eru einnig reiðubúnir til að fjármagna tvöföldun Suðurlandsvegar. Óvíst er hvenær af þeirri framkvæmd verður. Þar greinir stjórnarflokkana á um vegtoll, en Vinstri grænir hafa hingað til lagst gegn honum. Á meðan það er óleyst verður ekki af framkvæmdum. Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir hugmyndir um þessar framkvæmdir liggja fyrir. „Það eru einkum þessi tvö mál sem hafa verið uppi á borðinu. Þau eru í vinnslu hjá stjórnvöldum. Það stendur ekkert upp á okkur, við erum tilbúnir að setjast niður og semja, en stjórnvöld verða að klára sinn hluta.“ Arnar segir viðskiptamódel fyrir samgöngumiðstöð liggja fyrir. Lífeyrissjóðirnir hafi enga skoðun á staðsetningu hennar, en séu tilbúnir með fjármagn. Þá þurfi ríkisstjórn að taka pólitíska ákvörðun um veggjald. - kóp
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Sjá meira