Segja Icesave-frumvarp stangast á við stjórnarskrá 2. desember 2009 13:36 Icesave.
Þeir Lárus H. Blöndal hæstaréttalögmaður, lagaprófessorarnir Sigurður Líndal og Stefán Már Stefánsson rita grein í Morgunblaðið í dag um stjórnarskrána og Icesave-samningana. Í greininni segja þeir óvíst að frumvarpið um Icesave skuldbindingarnar sem Alþingi fjallar nú um standist stjórnarskrána. Við lögin, sem samþykkt voru á Alþingi í byrjun september um ríkisábyrgð vegna Icesavesamninganna, hafi verið ákveðnir fyrirvarar. Þannig voru sett efnahagsleg viðmið sem takmörkuðu ábyrgð ríksins við ákveðið hámark af vexti vergrar landsframleiðslu á hverju ári. Þetta átti að tryggja að greiðslur yrðu ávallt innan greiðsluþols íslenska ríksins. Einnig var við það miðað að fengist sú niðurstaða hjá þar til bærum úrskurðaraðila að íslenska ríkið bæri ekki ábyrgð gæti ríkið losnað undan ábyrgðinni. Lögfræðingarnir segja að með frumvarpinu nú sé ábyrgðin hluti af lánasamningum og skilyrðislaus. Skuldbindingar séu óljósar og ófyrirsjáanlegar. Ef efnahagsástand þjóðarinnar versni á greiðslutímanum geta skuldbindingarnar valdið þungum búsifjum. Svipað geti gerst ef neyðarlögunum verði vikið til hliðar. Litið hafi verið framhjá möguleikanum á því að neyðarlögin verði felld úr gildi og að ríkið þurfi þá að greiða kröfuhöfunum bætur. Ef svo færi gæti ríkið þurft að greiða á annað þúsund milljarða króna. Þjóðin gæti ekki staðið fjárhagslega undir því ásamt öðrum skuldbindingum. Í stjórnarskránni sé kveðið á um að ríkið megi ekki taka lán sem skuldbinda ríkið nema með lagaheimild og að lagareglur verði að vera skýrar og afdráttalausar. Þau lög sem nú er rætt um á Alþingi vegna Icesave séu þannig að enginn virðist vita með vissa hvaða skuldbindingar sé verið að gangst undir. Draga verði því í efa að lögin standist stjórnarskrána og að með þeim sé verið að skerða fullveldi ríksins. Fjárlaganefnd fundaði um Icesave málið í gær. Þangað mættu fjórir lögfræðingar til að leggja mat sitt á hvort að frumvarpið um Icesave stangist á við stjórnarskrá. Þrír, Eiríkur Tómasson, Björg Thorarensen og Ragnhildur Helgadóttir, voru á því að svo væri ekki en Sigurður Líndal taldi það álitamál
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Sjá meira