Straumsvík: Þrjár milljónir vinnustunda án alvarlegra slysa 2. mars 2009 10:34 Álverið í Straumsvík.
Þann 14. febrúar síðastliðinn náðu starfsmenn álversins í Straumsvík þeim einstaka árangri að unnar hafa verið þrjár milljónir vinnustunda án þess að orðið hafi alvarlegt vinnutengt slys. Leiðtogi öryggismála og eldvarna hjá ISAL, Halldór Halldórsson, segir að árangurinn megi einkum rekja til þrotlausrar vinnu starfsmanna og vilja þeirra til að gera stöðugt betur þegar kemur að öryggismálum. Um er að ræða slys í flokkum 1 og 2 samkvæmt alþjóðlegum slysaskilgreiningum sem ISAL styðst við og notaðar eru hjá sambærilegum fyrirtækjum víða um heim. Árlega vinna starfsmenn álversins og verktakar á athafnasvæðinu um eina milljón vinnustunda að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Mestur viðsnúningur varð að sögn Halldórs árið 1998 þegar átak var gert til að sporna við vinnutengdum slysum með markvissum hætti. „Í því felst meðal annars að starfsmenn tilkynna um allt sem þeir telja að megi betur fara í vinnuumhverfinu hvað varðar öryggi og skrá öll öryggistengd atvik. Þar má nefna skyndihjálparslys í flokki 4 og svonefnd "hér-um-bil-slys", þ.e.a.s. tilvik þar sem legið hefur við slysi. Allmörg hér-um-bil-slys voru tilkynnt á liðnu ári og 30 minniháttar óhöpp samkvæmt flokki 4. Allar slíkar tilkynningar eru greindar og í kjölfarið er gripið til viðeigandi fyrirbyggjandi aðgerða í því skyni að auka öryggi starsmanna enn frekar," segir Halldór. Öll störf hjá ISAL hafa verið áhættugreind og öryggisreglur uppfærðar með hliðsjón af þeirri greiningu. „Síðast en ekki síst hefur innleiðing á vottuðu öryggisstjórnunarkerfi gert starfsmönnum kleift að viðhalda góðum árangri, ásamt því sem reglulega eru sett ný markmið um að gera enn betur," segir að lokum í tilkynningunni.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira