Afskriftaleiðin kemur Íslandsbanka til góða 29. september 2009 12:06
Afskriftaleið Íslandsbanka er gerð á viðskiptalegum forsendum og mun koma bankanum til góða, segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka. Skuldbreyti viðskiptavinir erlendum lánum í íslensk þá bæti það gjaldeyrisjöfnuð bankans. Vatnaskil urðu í lánamálum heimilanna í gær þegar Íslandsbanki upplýsti að frá fyrsta nóvember gætu viðskiptavinir þeirra með gengis- og verðtryggð húsnæðislán breytt þeim í óverðtryggð krónulán og við það myndi höfuðstóll erlendra lána lækka um 25% en krónulána um 10%. Þannig myndi höfuðstóllinn lækka í samræmi við stöðu lánanna nokkrum vikum fyrir bankahrun. Þetta er almenn aðgerð sem stendur öllum viðskiptavinum Íslandsbanka til boða - en hvorki stjórnvöld né aðrar lánastofnanir hafa ljáð máls á því að fara í slíkar almennar leiðréttingar á lánum. Viðkvæði stjórnvalda hafa gjarnan verið að slík aðgerð myndi setja Íbúðalánasjóð á hliðina á örfáum mánuðum. En hvernig skyldi þá standa á því að Íslandsbanki treystir sér til að leiðrétta höfuðstóla fasteignalána með þessum hætti? Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka segir að skuldbreyting erlendra lána verði til þess að draga úr gengissveiflum hjá bankanum, sem er nú einkum að nota innlán - þ.e. innistæður í krónum - til útlána. Með skuldbreytingunni standi fólk auk þess betur í skilum, enda sé nú tæpur helmingur gengislánaskuldara með lán sín fryst eða í greiðslujöfnun. Um 3000 einstaklingar skulda húsnæðislán hjá bankanum, um 125 milljarða í verðtryggðum en 25 milljarða í gengislánum. Fólk mun hvorki greiða stimpil- né lántökugjald af skuldbreytingunni, verði hún gerð fyrir áramót. Þess má geta að fólk afsalar sér ekki við skuldbreytingu rétti til skaðabóta komi til þess að gengislán verði dæmd ólögleg.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps Erlent Fleiri fréttir Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Sjá meira