Innlent

Persónuvernd úrskurðar gegn Versló

Persónuvernd úrskurðaði að Verslunarskóla Íslands hafi ekki verið heimilt að upplýsa foreldra nemanda sem voru orðnir tvítugir um mætingu þeirra við skólann. Alls kvörtuðu 37 nemar við skólann til Persónuverndar vegna málsins en skólinn hafði sent upplýsingar um mætingu þeirra til foreldra þeirra.

Persónuvernd komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að foreldrar nema undir tvítug hafi verið heimilt að fá vitneskju um mætingu barna sinna á þeim grundvelli að foreldrarnir hafi ákveðnar skyldur gagnvart börnum sínum þó framfærsluskyldunni sé lokið.

Alls voru 211 bréf send út á síðustu önn, af þeim fóru 52 til ólögráða nemenda og 159 til lögráða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×