Innlent

Nýjar uppgötvanir tengdar blöðruhálskrabba

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar ásamt vísindamönnum í Finnlandi, Hollandi, Bandaríkjunum og á Spáni, hafa fundið fjóra breytileika í erfðamengi mannsins, sem auka mjög líkur á krabbameini í blöðruhálskirtli, segir í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu. Þessar niðurstöður verða nýttar til frekari greiningarprófana og munu væntanlega gagnast í baráttunni við þessa tegund krabbameins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×